Náttfari

 Fundargerðir:

 

Árið 2010, fimmtudag 1. júlí kl. 20:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

 Kristján Arnarson #12

Guðlaugur Árnason #36

Brynja Pálsdóttir #30

Sigurður Örn Ólafsson #63

Magnús Hermannsson #168

 

1.      Mærudagar.

Undirbúningur fyrir mærudaga.  Rætt um auglýsingu f. daginn, útvegun á grillurum og fl.

Stjáni hafi samband við   Tíuna og Nornirnar.  Sami tími eða sýning hefjist kl. 13 og

standi til kl. 15 og þá verði farið í hópferð um bæinn   Pylsur og gos í boði Shell.

Auglýsa eftir grillurum og Sjáni og Brynja taka á móti þeim.

2.      Félagatal.

Farið aðeins yfir félagatalið, þ.e.a.s. hverjir eru búnir að greiða og ekki greiða félagsgjaldið.

3.      Hjóladagar Akureyri 16 til 18 júlí.

Passa upp á kynningu og ferð þangað.

4.      Landsmótið og setja tíma á dagsferð þangað.

Annars hlaupið á ýmsu smálegu.

    

            Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 21.

                                           Magnús Hermannsson ritari

 

 

 

Árið 2010, laugardaginn 24. apríl kl. 13:00 var aðalfundur Náttfara – bifhjólasamtaka Þingeyinga haldinn, fyrir árið 2009, á veitingahúsinu Sölku á Húsavík.

 

Þetta gerðist:

 

Formaður, Kristján Arnarson #12, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

 

Var síðan gengið til dagskrár skv. lögum samtakanna:

 

 

1)         Kosning fundarstjóra og fundarritara

 

            Formaður stakk upp á Reinhard Reynissyni #4 sem fundarstjóra og Tryggva Jóhannssyni #74 sem fundarritara.

 

            Samþykkt með lófataki

 

           

2)         Inntaka nýrra félaga

 

Fyrir fundi lá listi yfir átta nýja félaga sem samþykktir hafa verið af stjórn frá síðasta aðalfundi. Fundarstjóri bar upp listann til staðfestingar skv. 4. gr. laga samtakanna og var hann samþykktur með lófataki.

 

            Samþykkt með lófataki

 

 

3)         Skýrsla um starfsemi liðins árs

 

Formaður gerði grein fyrir helstu atriðum i starfseminni frá síðasta aðalfundi.

Nokkrar breytingar urðu í félagahópnum á árinu. Tuttugu og einn félagi hætti en átta nýir bættust við.

Stjórnarfundir urðu þrettán á starfsárinu og reglulegir fundir hafa verið áfram á fimmtudögum í húsnæði samtakanna, Hvíta húsinu, á Shellplaninu á Húsavík sem Skeljungur hefur lagt klúbbnum til.

Helstu viðburðir á vegum samtakanna var grillveisla í Heiðarbæ, hjólasýning á Mærudögum þar sem Skeljungur okkar helsti styrktar- og samstarfsaðili hefur lagt okkur til öll aðföng á grillið sem vert er að þakka. Unnið er að gerð nýs samnings við Skeljung.

Hjólað var á ýmsa viðburði hjólafólks viða um land auk þess sem félagar fóru margar ferðir víða um héruð.

Skýrsla formanns verður birt í heild á heimasíðu samtakanna.

 

4)         Ársreikningar 2009

 

            Gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningunum. Fram kom að rekstur samtakanna var í jafnvægi á árinu.

             Að loknum fyrirspurnum og umræðum um skýrslu og reikninga bar fundarstjóri reikningana upp til afgreiðslu.

           

            Samþykktir samhljóða

 

 

5)         Félagsgjöld 2010

 

            Ákvörðun félagsgjalda skv. 7. gr. laga samtakanna.

Fundarstjóri gerði grein fyrir tillögu stjórnar um félagsgjald fyrir árið 2010 verði það sama og 2009, kr. 4500,-

 

            Samþykkt að árgjald sé óbreytt á milli ára kr. 4500,-      

 

 

6)         Lagabreytingar

 

            Engar tillögur bárust um lagabreytingar.

 

 

 

7)        Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna                  

 

            Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna.

 

Tillaga kom um Kristján R. Arnarson #12 sem formann og aðra í stjórn: Brynju Pálsdóttur #30, Guðlaug Árnason #36, Óskar Kristjánsson #62 og Sigurð Örn Ólafsson #63, Matthías Axelsson #79 og Magnús Hermannsson #168. Ekki komu fram fleiri tillögur og voru þessir því sjálfkjörnir.

 

            Samþykkt með lófataki

 

Tillaga kom um Arnar Sigurðsson #32 og Guðmund Salómonsson #77 sem skoðunarmenn og voru þeir sjálfkjörnir.

 

            Samþykkt með lófataki

 

Úr stjórn gengu Kjartan Traustason og Tryggvi Jóhannsson og voru þeim þökkuð góð störf í þágu samtakanna með lófataki. Þá voru nýir stjórnarmenn, þau Brynja Pálsdóttir og Magnús Hermannsson boðin velkomin til starfa með lófataki.

 

 

7)        Kosningar í nefndir                 

 

            Kosningar í nefndir skv. 14. gr. laga samtakanna.

Kosning tveggja manna í húsnefnd. Tillaga kom fram um Sigmund Þorgrímsson #1 og Benedikt Kristjánsson #104.

 

            Samþykkt með lófataki

 

 

8)         Önnur mál.

 

 

a)        Trausti Jón Gunnarsson #52 ræddi um hvort stofna ætti ferðanefnd. Nokkrar umræður en ekki almennur vilji til gera það.

 

 

b)         Guðmundur Salómonsson #77 bar fram fyrirspurn hvort ekki væri rétt að stærri ferðir væru á vegum klúbbsins. Skiptar skoðanir voru um málið. Félagar þó sammála umað auglýsa ferðir betur á heimasíðunni.

 

 

Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til þess að hann og fundarritari gengju frá fundargerð. Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:35

 

Fundarstjóri:                                                                        Fundarritari:

Reynhard Reynisson #4                                                        Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2010 fimmtudag 8 apríl kl. 19.30 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara- bifhjólasamtökum þingeyinga í félagsheimili  samtakanna „ Hvíta húsinu á Húsvík

Mættir:

Kristján, Gulli, Óskar, Tryggvi og Siggi

Efni fundarins var tilvonandi aðalfundur Náttfara.

Ákveðið að halda aðalfund laugardaginn 24. Apríl kl. 13.00 á veitingahúsinu Sölku á  Húsavík.

 

 

 

 

Árið 2010, fimmtudag 4. mars kl. 19:30 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

 

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Sigurður Örn Ólafsson #63

Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Þetta gerðist:

 

1)      Samstarfið við Shell

 

Haft hefur verið samband við Þorgils (Dúdda) frá Shell á Akureyri og mun hann koma á næstunni á fund þar sem farið verður yfir samstarfsmálin í ljósi þeirrra breyttu aðstæðna sem komnar eru upp. Reynt verður að fá hann á næsta fund ef mögulegt verður.

     

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:55

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2009, fimmtudag 5. nóvember kl. 19:30 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Krístján Arnarson #12

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Sigurður Örn Ólafsson #63

Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Þetta gerðist:

 

1)      Fundartími stjórnar

 

Ákveðið að í vetur verði fastur fundartími stjórnar áfram fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 19:30.

 

2)      Pizzukvöld

          

Fimmtudagskvöld 12. nóv. kl. 20:00 verður pizzukvöld á Sölku. Það verður nánar auglýst á heimasíðunni.

     

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:55

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

Árið 2009, fimmtudag 6. ágúst kl. 19:30 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Krístján Arnarson #12

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Þetta gerðist:

 

1)      Gjöf til samtakanna

 

Albert G. Arnarson #15, fyrirrverandi formaður, mætti á fundinn og afhenti samtökunum að gjöf tölvu og prentara, sem verið hafa í aðstöðunni en í eigu Alberts.

Stjórn þakkar Alberti gjöfina og margvísleg störf fyrir samtökin.

          

     

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:00

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2009, fimmtudag 2. júlí kl. 20:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Sigurður Örn Ólafsson #63

Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Þetta gerðist:

 

1)      Fundir / hittingur á fimmtudögum

 

Rætt um að lítið samstarf hafi verið um hjólatíma í sumar og fólk verið að fara á öllum mögulegum tímum, sem í sjálfu sér er ágætt en líka þurfi að vera hægt að ganga að einhverju skipulagi fyrir þau sem þess óska.

Því samþykkti stjórn að alla fimmtudaga í sumar sé fundur / hittingur í eða við “Hvíta húsið” kl. 19:30 til skrafs og ráðagerðar. Síðan verði hjólað af stað í ferðir kl. 20.

Nánari upplýsingar verði færðar inn á atburðadagatalið á heimasíðu samtakanna.

 

2)      Beiðni um endurúthlutun á félagsnúmeri

 

Fyrir fundi lá erindi, frá fyrrverandi félaga, sem er að selja merktan fatnað, um það hvort félagsnúmerið geti fylgt fatnaðinum til nýs eiganda.

Sú hefð hefur skapast að endurúthluta ekki númerum þeirra félaga sem hætta í samtökunum því hafnar stjórn þessu erindi.   

           

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:30

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2009, miðvikudag 3. júní kl. 20:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Kristján R. Arnarson #12, formaður

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Sigurður Örn Ólafsson #63

Tryggvi Jóhannsson #74

 

Þessi fundur var haldinn á miðvikudegi vegna grillveislu Náttfara í Heiðarbæ annað kvöld.

 

Þetta gerðist:

 

1)      Grillveisla í Heiðarbæ

 

Farið yfir undirbúning hinnar árlegu grillveislu Náttfara í Heiðarbæ á morgun.

 

2)      Innheimta árgjalda 2009

 

Gjaldkeri fór yfir stöðuna og kom fram að nú þegar hafa 102 félagar greitt árgjaldið.

 

3)      Samstarfið við Shell

 

Formaður átti fund með fulltrúa frá Skeljungi og kom þar fram að Skeljungur mun styðja áfram við klúbbinn á svipaðan hátt og í fyrra. Mikil ánægja er af beggja hálfu með samstarfið.   

           

 

    

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:00

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

Árið 2009, þriðjudag 5. maí kl. 20:30 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Kristján R. Arnarson #12, formaður

Guðlaugur Árnason #36

Kjartan Traustason #53

Óskar Þ. Kristjánsson #62

Sigurður Örn Ólafsson #63

Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Þetta gerðist:

 

1)      Heimsókn Goðanna

 

Goðarnir hafa boðað komu sína helgina 22. - 24. maí og verður þeim að sjálfsögðu vel fagnað.

 

2)      Bónkynning

 

Shell verður með bónkynningu föstudag 22. maí kl. 17. Staðsetning fer eftir veðri og verður auglýst þegar nær dregur á heimasíðunni. 

Samþykkt samhljóða

 

3)      Erindi frá Félagsþjónustu Þingeyinga

 

Borist hefur bréf frá FÞ þar sem óskað er eftir liðveislu félaga í Náttfara við ákveðið verkefni. Samþykkt að skoða verkefnið með jákvæðu hugarfari.     

           

4)      Breyttur tími stjórnarfunda

 

Ákveðið að fastir stjórnarfundir verði framvegis fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 19:30.  

    

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:15

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 



 

 

 

 

 

 

 

Árið 2009, fimmtudag 23. apríl kl. 20:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.
 
 
Mættir voru.
Kristján R. Arnarson #12, formaður
Guðlaugur Árnason #36
Kjartan Traustason #53
Óskar Þ. Kristjánsson #62
Sigurður Örn Ólafsson #63
Tryggvi Jóhannsson #74


 
Þetta gerðist:
 
1)     Formaður setti fund og bauð nýkjörna stjórnarmenn velkomna til starfa
 
2)     Stjórn skipti með sér verkum.
 
Formaður gerði eftirfarandi tillögu um verkaskiptingu stjórnar:
Sigurður Örn Ólafsson, varaformaður
Kjartan Traustason, gjaldkeri
Tryggvi Jóhannsson, ritari
Guðlaugur Árnason, meðstjórnandi
Óskar Þ. Kristjánsson, varamaður
Matthías Axelsson #79, varamaður
 
Samþykkt samhljóða
 
3)   Rætt um fyrirliggjandi verkefni og ákveðið að stjórn fundi fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 20.     
           

Fengist hefur yfirdráttarheimild í bankanum vegna kaupa á heimasíðunni sem verða frágengin á morgun.
Gjaldkeri hefur sent út greiðsluseðla vegna árgjalda sem vonandi skila sér vel þannig að hægt verði að greiða yfirdráttinn hratt niður.
Rætt var um að nýta félagsaðstöðuna betur yfir sumartímann en verið hefur og gera hana að upphafsstað allra ferða á vegum samtakann.
Fyrirhugað er að halda aftur fjölskyldugrillveislu í Heiðarbæ í sumar og er horft til fimmtudagsins 4. júní í því sambandi.  
    
 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:00
 
Tryggvi Jóhannsson, ritari
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2009, laugardaginn 18. apríl kl. 14:00 var haldinn aðalfundur Náttfara – bifhjólasamtaka Þingeyinga, fyrir árið 2008, á veitingahúsinu Sölku á Húsavík.

 

Þetta gerðist:

 

Varaformaður, Sigmundur Þorgrímsson #1, í fjarveru formanns, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

 

Var síðan gegnið til dagskrár skv. lögum samtakanna:

 

 

1)         Kosning fundarstjóra og fundarritara


            Varaformaður stakk upp á Stefáni Stefánssyni #101 sem fundarstjóra og Tryggva Jóhannssyni #74 sem fundarritara.

 

            Samþykkt með lófataki

 

           

2)         Inntaka nýrra félaga

 

Fyrir fundi lá listi yfir nýja félaga sem samþykktir hafa verið af stjórn. Fundarstjóri bar upp listann til staðfestingar skv. 4. gr. laga samtakanna og var hann samþykktur með lófataki.

 

            Samþykkt með lófataki

 

 

3)         Skýrsla um starfsemi liðins árs

 

Varaformaður gerði grein fyrir helstu atriðum i starfseminni frá síðasta aðalfundi. Nokkrar breytingar hafa orðið á félagahópnum á árinu. Nítján félagar hættu en tuttugu og fimm nýir bættust við og eru félagar nú rúmlega 140.

Reglulegum fundir hafa verið áfram á fimmtudögum í húsnæði samtakanna, Hvíta húsinu, á Shellplaninu á Húsavík.

Farið var í hjólamessu á Akureyri. Hópakstur og hjólasýning var á Mærudögum. Nokkrir félagar fóru á Ljósanótt í Keflavík. Farin var hópferð um Austfirði sem tókst vel. Akureyringar sóttir heim á hjóladegi þeirra. Fjölskyldudagur og grillveisla í Heiðarbæ.

Auk ofantalins fóru félagar margar góðar ferðir svona bara „eftir auganu“ eða réttara sagt eftir maganum.

 

 

4)         Ársreikningar 2008


            Gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningunum. Að loknum umræðum bar fundarstjóri þá upp til afgreiðslu.

           

            Samþykktir samhljóða

 

 

5)         Félagsgjöld 2009


            Ákvörðun félagsgjalda skv. 7. gr. laga samtakanna.

Fundarstjóri gerði grein fyrir tillögu stjórnar um félagsgjald fyrir árið 2009, kr. 3.000,- Um er að ræða lækkun úr 4500,- fyrir árið 2008.

Guðmundur Salómonsson #77 leggur til að árgjaldið verði óbreytt.

Gengið til atkvæða um þessar tvær tillögur. Fyrst var tillaga stjórnar borin upp og var hún felld með öllum greiddum atkvæðum.

Tillaga Guðmundar var því næst borin upp og samþykkt mótatkvæðalaust.

 

            Samþykkt að árgjald sé óbreytt á milli ára kr. 4500,-       

 

 

6)         Lagabreytingar

 

            Eftirfarandi tillögur bárust um lagabreytingar:

(Breytingartillögur eru skrifaðar með rauðu)

               

            a) 1. gr. Nafn

 

Nafn samtakanna er Náttfari - bifhjólasamtök Þingeyinga

 

            Töluverðar umræður urðu um hvort breyta ætti seinni hluta nafns samtakanna en að lokum var samþykkt að nafn samtakanna yrði óbreytt?

 

 

            b) 3. gr. Tilgangur

 

Tilgangur samtakanna er að;

- koma á sem víðtækustu samstarfi að vera félag bifhjólafólks í Þingeyjarsýslu og nágrenni annarra sem þess óska

- gæta hagsmuna félagsmanna á opinberum vettvangi,

- stuðla að bættri umferðarmenningu  með góðu fordæmi og

- hjóla saman og skemmta sér og öðrum.

 

                Breytingartillagan samþykkt

 

 

            c) 5. gr. Fullgildur félagi

 

Fullgildir félagar eru þeir einir sem greitt hafa inntökugjald/árgjald samtakanna og stjórn hefur ekki samþykkt að vísa úr samtökunum sbr. ákvæði 7. gr. Einungis fullgildir félagar mega bera einkennismerki Náttfara.

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

            d)6. gr. Úrsögn

 

Vilji félagi segja sig úr samtökunum skal hann gera það skriflega til stjórnar. Hafi félagi ekki greitt árgjald fyrir lok þess árs sem um ræðir skal það skoðað sem úrsögn og viðkomandi strikaður af félagaskrá.

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

            e) 6.7. gr. Brottvísanir

 

Hægt er að vísa einstaklingi úr samtökunum hafi hann sýnt að hann sé ekki þess verður að bera merki samtakanna. Til þess þurfa fimm fullgildir meðlimir að leggja fram sína skriflegu, rökstuddu kæruna hver til stjórnar. Stjórn skal afgreiðirkröfu um brottvísun sem staðfest skal á næsta aðalfundi. Félagar sem vísað er úr samtökunumhætta skulu fjarlægja einkennismerki Náttfara af mótorhjólafatnaði sínum strax.ekki seinna en tveimur árum eftir að þeir hætta.

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

            f)  10. gr. Útgáfa

 

Stjórn samtakanna skipar ritstjóra fréttarits sem er ábyrgur fyrir útgáfu þess. Fréttaritið skal gefið út með tiltölulega jöfnu millibili á milli aðalfunda, a.m.k. 2 sinnum á ári og oftar ef þörf þykir, að mati stjórnar. Heimilt er að hafa fréttaritið í formi heimasíðu.  

Stjórn ber að halda úti heimasíðu

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

            g) 11. gr. Aðalfundur

 

Rétt til setu á aðalfundi hafa fullgildir félagar. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis mættir, fullgildir félagar.

 

Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:

 

1.         Kosning fundarstjóra og fundarritara

2.         Inntaka nýrra félaga

3.         Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs

4.         Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs

5.         Ákvörðun árgjalds

6.         Lagabreytingar skv. 13.gr. laga samtakanna.

5.         Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna

6.         Ákvörðun um kosningu nefnda skv. 14.gr. laga samtakanna.

7.         Önnur mál

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

            h) 12. gr. Skipan stjórnar

 

Í stjórn Samtakanna skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Kosið skal í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara,  meðstjórnanda og tveggja varamanna í stjórn. Formaður er kosinn sérstaklega, og skal hann búsettur í Þingeyjarsýslusem og varaformaður, en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum. Þá skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn.
Framboð skal berast stjórn. Kosningu hljóta þeir er flest atkvæði fá. Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

 

            Breytingartillagan felld

 

 

            i)14. gr. Nefndir

 

Eftirfarandi nefndir skulu kosnar á aðalfundi: skemmtinefnd, ferðanefnd  og eignanefnd (sér um húsnæðismál og eignir félagsins og umhirðu þeirra). Allar nefndirnar skulu skipaðar þremur félögum, og skal hver nefnd skipa einn fulltrúa sem er tengiliður við stjórn og er sá jafnframt formaður nefndarinnar. Varaformaður samtakanna skal þó sjálfkjörinn í eignanefnd og vera formaður hennar.

Áaðalfundi skal kjósa tvo félaga í húsnefnd auk varaformanns sem er sjálfkjörinn formaður nefndarinnar. Nefndin skal sjá um félagsaðstöðu í samráði við stjórn. Fjármál nefnda skulu vera að mestu eða öllu leyti á höndum gjaldkera samtakanna. Um verksvið nefndanna vísast til nafns þeirra og skulu þær starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks að leiðarljósi.

 

            Breytingartillagan samþykkt

 

 

7)         Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna                  

            Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna.

Tillaga kom um Kristján R. Arnarson #12 sem formann og aðra í stjórn: Tryggva Jóhannsson #74 , Kjartan Traustason #53, , Matthías Axelsson #79, Guðlaug Árnason #36, Óskar Kristjánsson #62 og Sigurð Örn Ólafsson #63.  Ekki komu fram fleiri tillögur og voru þessir því sjálfkjörnir.

Tillaga kom um Arnar Sigurðsson #32 og Guðmund Salómonsson #77 sem skoðunarmenn og voru þeir sjálfkjörnir.

 

            Samþykkt með lófataki

 

 

8)         Kosningar í nefndir                 
 

            Kosningar í nefndir skv. 14. gr. laga samtakanna.

Kosning tveggja manna í húsnefnd. Tillaga kom fram um Benedikt Kristjánsson #104 og Sigmund Þorgrímsson #1.

 

            Samþykkt með lófataki

 

 

9)         Önnur mál.

 


a)         Styrkbeiðnir hafa borist frá ýmsum aðilum.

 

            Samþykkt að hafna öllum slíkum erindum       

 

b)         Tilboð frá Albert Arnarsyni #15, fráfarandi formanni, um að hann selji samtökunum heimasíðuna ásamt lénunum nattfari.is og náttfari.is á kr. 250.000 staðgreitt.  

 

            Samþykkt með öllum atkvæðum að taka tilboði Alberts og færa honum þakkir fyrir frábærlega  unnin störf við heimasíðuna og fyrir samtökin almennt, sem seint verða fullþökkuð.  

c)         Siglfirðingar gerðu grein fyrir starfseminni þar.              

 

d)         Benedikt Kristjánsson #104 færði tveimur fráfarandi stjórnarmönnum Sigmuni og Stefáni    snyrtigræjur, sérstaklega hannaðar til brúks á Nomad – hjólum.      

 

e)         Rætt um Færeyjaferð að frumkvæði Hannesar #56. 

            Hannes haldi frumkvæðinu áfram.

 

f)          Guðmundur Sal. vill að fundargerðir reglulegra stjórnarfunda verði settir á netið.

            Stjórn mun bæta úr því.

 

g)         Rætt um aðferðir við að boða ferðir. Stjórn falið að leysa málið.

 

h)         Aðgangur að félagsaðstöðu fyrir félaga utan Húsavíkur sem koma á svæðið.

            Stjórn falið að finna lausn.

Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til þess að hann og fundarritari gengju frá fundargerð. Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:55

 

 

Fundarstjóri:                                 Fundarritari:

Stefán Stefánsson #101                 Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2008, þriðjudag 11. mars kl. 20:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í félagsheimili samtakanna “Hvíta húsinu” á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Albert G. Arnarson #15, formaður

Kjartan Traustason #53

Tryggvi Jóhannsson #74

Stefán  Stefánsson #101

Sigmundur Þorgrímsson #1

Kristján R. Arnarson #12

 

Þetta gerðist:

 

1)     Formaður setti fund og bauð nýkjörna stjórnarmenn velkomna til starfa

 

2)     Stjórn skipti með sér verkum.

 

Formaður gerði eftirfarandi tillögu um verkaskiptingu stjórnar:

Sigmundur Þorgrímsson, varaformaður

Kjartan Traustason, gjaldkeri

Tryggvi Jóhannsson, ritari

Stefán Stefánsson, meðstjórnandi

Kristján R. Arnarson, varamaður

Matthías Axelsson #79, varamaður

 

Samþykkt samhljóða

 

 

      3)   Rætt um fyrirliggjandi verkefni og ákveðið að stjórn fundi fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 20.     

            Jafnframt var samþykkt að herða á innheimtu félagsgjalda og verður áminning sett á heimasíðuna.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:00

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2008, fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 var haldinn aðalfundur Náttfara – bifhjólasamtaka Þingeyinga, fyrir árið 2007,  í nýrri aðstöðu samtakanna í „Hvíta húsinu“ á Shellplaninu á Húsavík.

 

Þetta gerðist:

 

Oddviti, Albert G. Arnarson #15, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og stakk upp á Stefáni Stefánssyni #101 sem fundarstjóra og Tryggva Jóhannssyni #74 sem fundarritara.

Samþykkt með lófataki.

 

Var síðan gegnið til dagskrár skv. lögum samtakanna:

 

1)                 
Inntaka nýrra félaga. Fyrir fundi lá listi yfir nýja félaga sem samþykktir hafa verið af stjórn. Fundarstjóri bar upp listann til staðfestingar skv. 4. gr. laga samtakanna og var hann samþykktur með lófataki.

 

2)                 
Skýrsla um starfsemi liðins árs. Oddviti gerði grein fyrir helstu atriðum i starfseminni frá síðasta aðalfundi sem áfram hefur einkennst af mikilli fjölgun félaga sem nú eru komnir á fjórtánda tuginn. Reglulegum fundir hafa verið áfram á fimmtudögum í húsnæði 4x4 klúbbsins út á Höfða og mæting félaga góð.

Nú hafa samtökin fengið til afnota hjá Shell „Hvíta húsið“ á Shellplaninu á Húsavík. Þar hefur verið útbúin glæsileg aðstaða og hafa margir félagar lagt þar hönd á plóginn og er þeim þakkað svo og forráðamönnum Shell á Húsavík og Akureyri sem hafa stutt dyggilega við starfsemi samtakanna.

Fyrsti fundurinn í nýju aðstöðunni var fimmtudaginn 28. feb. sl.

Landsmót bifhjólamanna var haldið í Skúlagarði 5-8 júlí og komu Náttfaramenn að því með ýmsu móti. Einnig voru hjólasýningar og hópakstur 17. Júní og á Mærudögum. Margar góðar ferðir farnar  hingað og þangað.

Árshátíð haldin haust sem leið á Sölku. Þar var safnað um 150 þúsund kr. til góðgerðarmála, sem voru svo afhentar rétt fyrir jól.

Félögum hefur fjölgað um rúmlega sextíu frá síðasta aðalfundi.

 

3)                 
Ársreikningar 2007. Féhirðir gerði grein fyrir ársreikningunum. Að loknum umræðum bar fundarstjóri þá upp til afgreiðslu og voru þeir samþykktir samhljóða.

 

4)                 
Félagsgjöld 2008. Fundarstjóri gerði grein fyrir tillögu stjórnar um félagsgjald fyrir árið 2008, kr. 4.500,- Samþykkt með lófataki eftir nokkrar umræður.

 

5)

Lagabreytingar. Eftirfarandi tillögur bárust um lagabreytingar:

            Breytingartillögur eru skrifaðar með rauðu

               

a) 3. gr. Tilgangur

 

Tilgangur samtakanna er að;

- koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks í Þingeyjarsýslu og nágrenni,

- gæta hagsmuna félagsmanna á opinberum vettvangi,

- stuðla að bættri umferðarmenningu  með góðu fordæmi og

- hjóla saman og skemmta sér og öðrum.

 

Breytingartillagan samþykkt

 

b) 5. gr. Fullgildur félagi

Fullgildir félagar eru þeir einir sem greitt hafa inntökugjald/árgjald samtakanna og stjórn hefur ekki samþykkt að vísa úr samtökunum sbr. ákvæði 6. gr. Makar félaga fá frían aðgang sem félagar.

 

Breytingartillagan felld

 

c) 6. gr. Brottvísanir

Hægt er að vísa einstaklingi úr samtökunum hafi hann sýnt að hann sé ekki þess verður að bera merki samtakanna. Til þess þurfa fimm fullgildir meðlimir að leggja fram sína skriflegu, rökstuddu kæruna hver til stjórnar. Stjórn skal afgreiða kröfu um brottvísun sem staðfest skal á næsta aðalfundi. Félagar sem hætta skulu fjarlægja einkennismerki Náttfara af mótorhjólafatnaði sínum ekki seinna en tveimur árum eftir að þeir hætta.

 

Breytingartillagan samþykkt

 

d) 10. gr. Boðun aðalfundar

Haldinn skal aðalfundur fyrir maí lok ár hvert. Skal þar taka fyrir venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tíu daga fyrirvara. Boða má aðalfund  með tilkynningu á heimasíðu samtakanna eingöngu; ekki þarf að senda út skriflegt fundarboð til hvers félaga. Eintak af niðurstöðum endurskoðaðra ársreikninga og fundargjörð aðalfundar skal birt í fréttariti samtakanna að loknum aðalfundi. Aðalfundur er því aðeins löglegur sé löglega til hans boðað.

 

Breytingartillagan samþykkt

 

e) og f) 12. gr. Skipan stjórnar

Í stjórn samtakana skulu kosnir 3 einstaklingar, oddviti, skrifari og féhirðir og tveir til vara .e) heiti oddvita verði formaður, skrifari verði ritariog féhirðir gjaldkeri. f) Í stjórn Samtakanna skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Kosið skal í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara,  meðstjórnanda og tveggja varamanna í stjórn. Formaður er kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum. Þá skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn.
Tveir skoðunarmenn skulu kosnir skriflega ef stungið er uppá fleiri en tveim. Framboð skal berast stjórn. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða.

Kosningu hljóta þeir er flest atkvæði fá. Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

 

Breytingartillaga e) samþykkt

Breytingartillaga f) samþykkt

 

g) og h)14. gr. Nefndir

g) Eftirfarandi nefndir skulu kosnar á aðalfundi: skemmtinefnd, ferðanefnd  og eignanefnd (sér um húsnæðismál og eignir félagsins og umhirðu þess). Allar nefndirnar skulu skipaðar þremur félögum og skal

Á aðalfundi samtakanna skal taka ákvörðun um það hvort kjósa skuli í umferðar- og tryggingarnefnd og skemmti- og ferðanefnd. Ákveði aðalfundur að kjósa í nefndirnar skulu þrír kosnir í hvora nefnd. hver nefnd skal skipa sér einn fulltrúa sem er tengiliður við stjórn og er sá jafnframt formaður nefndarinnar.  h) Varaformaður samtakanna skal þó sjálfkjörinn í eignanefnd og vera formaður hennar. Fjármál nefnda skulu vera að mestu eða öllu leyti á höndum féhirðis gjaldkera samtakanna. Um verksvið nefndanna vísast til nafns þeirra og skulu þær starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks að leiðarljósi.

 

Breytingartillaga g) samþykkt

Breytingartillaga h) samþykkt

 

i) 16. gr. Aukaaðalfundur

Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga samtakanna óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til aukaaðalfundar skal boða skriflega með a.m.k. sjö daga fyrirvara. á sama hátt og til aðalfundar.

 

Breytingartillagan samþykkt

 

6)                 
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna.

Tillaga kom um Albert G. Arnarson #15 sem formann og aðra í stjórn: Sigmund Þorgrímsson  #1, Tryggva Jóhannsson #74 , Kjartan Traustason #53, Stefán Stefánsson #101, Kristján Arnarson #12  og Matthías Axelsson #79.  Ekki komu fram fleiri tillögur og voru þessir því sjálfkjörnir.

Tillaga kom um Arnar Sigurðsson #32 og Guðmund Salómonsson #77 sem skoðunarmenn og voru þeir sjálfkjörnir.

 

 

7)                 
Kosningar í nefndir skv. 14. gr. laga samtakanna.

Kosning tveggja manna í eignanefnd. Tillaga kom fram um Benedikt Kristjánsson #104 og Sævar Guðbrandsson #. Samþykkt samhljóða.

 

Kosning þriggja manna í ferðanefnd. Tillaga kom fram um Kristján Eggertsson #102, Guðlaug B. Aðalsteinsson #41, og Guðlaug Árnason #36. Samþykkt samhljóða.

 

Kosning þriggja manna í skemmtinefnd. Tillaga kom fram um Guðrúnu Árný Guðmundsdóttir #46, Trausta Jón Gunnarsson #52, og Guðmund Flosa Arnarson #16. Samþykkt samhljóða.

 

 

8)                 
Önnur mál.

 

a)                 

Þorgrímur Sigmundsson kom með fyrirspurn varðandi rekstur  á heimasíðunni. Formaður svaraði fyrirspurninni. 

 

b)                 
Rætt um notkun viðskiptakorts (kreditskorts) Shell. Fram kom að von er á nýrri gerð korta á næstunni.

 

c)                 
Fundarstjóri gerði grein fyrir framkvæmdum í nýrri aðstöðu félagsins. Leitað verður eftir styrkjum  frá ýmsum aðilum.  Sveitarfélagið Norðurþing hefur þegar lofað styrk.

 

d)                
Benedikt Kristjánsson og Kristján B. Eggertsson gáfu sambyggða klukku, loftvog og rakamæli til uppsetningar í nýju aðstöðuna. Honum þakkað.

 

Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til þess að hann og fundarritari gengju frá fundargerð. Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:15

 

 

Fundarstjóri:                                                                        Fundarritari:

Stefán Stefánsson #101                                                     Tryggvi Jóhannsson #74

 

 

Sjá má ný samþykkt lög undir linknum "Lög og reglur"

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2007, föstudaginn 22. júní kl. 12:00 var haldinn stjórnarfundur í Náttfara – bifhjólasamtökum Þingeyinga í Shellnesti á Húsavík.

 

 

Mættir voru.

Albert G. Arnarson, formaður

Tryggvi Jóhannsson, ritari

Sigmundur Þorgrímsson meðstj. og

Kristján R. Arnarson meðstj.

 

Þetta gerðist:

 

1)   Símamál formanns.

Fram kom að formaður hefur greitt úr eigin vasa símakostnað félagsins .

Aðrir stjórnarmenn telja rétt að þessi siður verði aflagður sem fyrst og samþykkja að Náttfari kaupi gsm-síma til afnota fyrir formann og greiði kostnað af honum. Síminn er notaður til að senda út SMS skilaboð til félaga.

 

2)   Landsmót bifhjólamanna í Skúlagarði

Samþykkt að Náttfari reisi tjald á svæðinu og leggi einnig keppnisbraut fyrir „crossara“.

 

         

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12:30

 

Tryggvi Jóhannsson, ritari

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árið 2007, fimmtudaginn 24. maí kl. 20:00 var haldinn aðalfundur Náttfara – bifhjólasamtaka Þingeyinga fyrir árið 2006 á veitingahúsinu Gamla Bauk á Húsavík.

 

Þetta gerðist:

 

Oddviti, Albert G. Arnarson # 15, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og stakk upp á Tryggva Jóhannssyni # 74 sem fundarstjóra og Reinhard Reynissyni # 4 sem fundarritara.

 

Var síðan gegnið til dagskrár skv. lögum samtakanna:

 

1)                 
Inntaka nýrra félaga. Fyrir fundi lá listi yfir nýja félaga sem samþykktir hafa verið af stjórn. Fundarstjóri bar upp listann til staðfestingar skv. 4. gr. laga samtakanna og var hann samþykktur með lófataki.

 

2)                 
Skýrsla um starfsemi liðins árs. Oddviti gerði grein fyrir helstu atriðum i starfseminni frá stofnun sem hefur einkennst af mikilli fjölgun félaga sem nú eru komnir á tíunda tuginn. Sagði einnig frá reglulegum fundum sem eru á fimmtudögum, fyrst í bílskúrnum að Fossvöllum 16 en í dag er aðstaðan í húsnæði 4x4 klúbbsins út á Höfða.

 

3)                 
Ársreikningar 2006. Gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningunum sem ekki eru áritaðir af skoðunarmönnum. Að loknum umræðum bar fundarstjóri upp þá tillögu að reikningarnir yrðu samþykktir með fyrirvara um athugasemdalausa áritun skoðunarmanna. Samþykkt samhljóða.

 

4)                 
Félagsgjöld 2007. Gjaldkeri gerði grein fyrir tillögu stjórnar um félagsgjald fyrir árið 2007, kr. 3.000,- Samþykkt samhljóða.

 

5)                 
Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna skv. 12. gr. laga samtakanna. Tillaga kom um Albert G. Arnarson # 15 sem oddvita, Tryggva Jóhannsson # 74 sem skrifara og Hjálmar Ingimarsson # 17 sem féhirði. Ekki komu fram fleiri tillögur og voru þeir því sjálfkjörnir. Tillaga kom um Kristján R. Arnarson # 12 og Sigmund Þorgrímsson # 1 sem varamenn og voru þeir sjálfkjörnir. Tillaga kom um Jóhann Guðna Reynisson # 19 og Reinhard Reynisson # 4 sem skoðunarmenn og voru þeir sjálfkjörnir.

 

6)                 
Ákvörðun um kosningar í nefndir skv. 14. gr. laga samtakanna. Oddviti lagði fram tillögu um að kosið yrði í tvær nefndir. Annars vegar í ferðanefnd og hins vegar í skemmtinefnd. Þar sem tillagan er ekki í samræmi við lög samtakanna óskaði fundarstjóri eftir því við fundinn að samþykkja afbrigði og var það samþykkt samhljóða. Í ferðanefnd voru sjálfkjörnir skv. tillögu oddvita Guðlaugur B. Aðalsteinsson # 41,  Kristján G. Þorsteinsson # 3 og Birgir Gunnlaugsson # 13 og í skemmtinefnd Brynja Pálsdóttir # 30, Kjartan Traustason # 53 og Kristján Gíslason # 44.

 

7)                 
Önnur mál.

a)                 

Sigmundur Þorgrímsson # 1 vakti athygli á því að ekki er sjálfgefið að allir sem sækja um inngöngu í samtökin fái hana. Ákvæði 4. gr. feli í sér virkt ákvörðunarvald stjórnar og aðalfundar hvað það varðar.

 

b)                 
Oddviti sagði frá beiðni frá Völsungi um að félagar í Náttfara taki þátt í dagskrá 17. júní á Húsavík með hópakstri og sýningu á hjólum. Samþykkt að þeir sem geta taki þátt.

 

c)                 
Rætt um hjólasýningu á Húsavíkurhátíð (Mærudögum) í sumar . Samþykkt að fela stjórn að finna hentuga staðsetningu í samráði við stjórnendur hátíðarinnar.

 

d)                
Jón Grímsson # 29  beindi því til ferðanefndar að efnt yrði til hópaksturs austur á Kópasker þegar lagningu bundins slitlags þangað líkur.

 

e)                 
Rætt um landsmót bifhjólamanna í Skúlagarði í sumar en Náttfari hefur verið beðinn að sjá um ca. 2 klst. dagskrá á mótinu. Oddviti lagði til að kosin yrði sérstök nefnd í málið og gerði tillögu um Brynju Pálsdóttur # 30, Svanhildi Jónsdóttur # 35, Trausta Jón Gunnarsson # 52, Jón Grímsson # 29, Kristján Gíslason # 44, Birgi Gunnlaugsson # 13, Eyþór Hemmert Björnsson # 47 og Hermann Bjarnason # 48 í hana. Samþykkt samhljóða.

 

Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til þess að hann og fundarritari gengju frá fundargerð. Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:20

 

 

Fundarstjóri:                                                                        Fundarritari:

Tryggvi Jóhannsson # 74                                                      Reinhard Reynisson # 4

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

9.2.2007

Stjórnarfundur hjá MC Náttfara.

 

 

Mættir voru.

Albert G.Arnarson formaður

Baldur Sigurgeirsson ritari

Hjálmar Ingimarsson gjaldkeri

Sigmundur Þorgrímsson meðstj. og

Skarphéðinn Aðalsteinsson meðstj.

 

Fyrsta mál fundarins var ákvörðun á félagsgjaldi. Var ákveðið að hækka þau úr 1500 kr í 3000 kr. Upp kom umræða um hvort slíka hækkun félagsgjalda yrði að ákveða á aðalfundi, en eftir snögga skoðun á lögum klúbbsins komst stjórnin að þeirri niðurstöðu að ákveða þessa hækkun.

 

Fundurinn ræddi um fyrirhugaða staðsetningu á landsmóti Snigla næsta sumar og vill koma þeim tilmælum til stjórnar Sniglanna að endurskoða þær hugmyndir að halda það í Skúlagarði og benti á aðra staði t.d. Breiðumýri í Reykjadal. Ákveðið var að taka vel í hugmyndir landsmótsnefndar Snigla (þ.e Jóa Rækju) að MC Náttfari verði Sniglum til aðstoðar við undirbúning landsmóts ef eftir verður leitað.

 

Ákveðið var að setja inn á heimasíðu klúbbsins, undir félagatal, hvort viðkomandi hefði greitt ársgjald eða ekki. Tekið var fyrir niðurröðun númera til nýrra félaga. Ákveðið var að halda fast við reglur klúbbsins að úthlutun nýrra númera fari eftir umsóknum, þannig að ekki verði hægt að panta ákveðin númer fram í tímann. Fundurinn ákvað fyrirkomulag á félagsskírteinum sem berast félagsmönnum innan tíðar.

 

Talað var um nýja félagsaðstöðu út á Höfða í gamla björgunarsveitarskýlinu þar sem ferðaklúbburinn 4x4 hefur haft aðstöðu. Það hús er í eigu Skeljungs hf. og tók Sigmundur Þorgrímsson að sér að hafa milligöngu um það mál og einnig fyrirhugaðan samning á milli MC Náttfara og Skeljungs um afsláttarkort til félaga. Hjálmar gjaldkeri ætlar að ræða við Landsbankann um tímabundna yfirdráttarheimild fyrir reikning klúbbsins þannig að klúbburinn geti borgað fyrir merki og sérmerktan fatnað til klúbbfélaga og þannig haldið afslætti sem kemur félögum til góða þegar fram í sækir.

 

Fundurinn ákvað að klúbburinn borgi fyrir lénið nattfari.is sem Albert formaður hefur borgað hingað til. Undir lok fundarins tók Óliver Albertsson við sem fundarritari um stund og sinnti því með sóma, sem hann hefur kyn til.

 

Og þannig var nú það.

 

Baldur Sigurgeirsson

Ritari. MC Náttfara

 

 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
05.05.2006 

 

Fundargerð stofnfundar bifhjólasamtaka Þingeyinga, Náttfara.

 

Fundur haldinn á veitingahúsinu Gamla Bauk kl. 17.00 þann 05.05.2006.

 

Mættir voru eftirtaldir:

 

Aðalsteinn Júlíusson

Albert G.Arnarson

Brynjúlfur Sigurðsson

Heimir Kristinsson

Hermann Pétursson

Hjálmar Ingimarsson

Hreiðar Hreiðarsson

Jóhann Guðni Reynisson

Reinhard Reynisson

Sigmundur Þorgrímsson

Sigrún Herdísardóttir

Skarphéðinn Aðalsteinsson

Þórir Örn Gunnarsson

 

 

Fundurinn veitti  Reinhard Reynissyni umboð til að vera fundarstjóri og skipaði fundarstjóri fundarritara, sem var Aðalsteinn Júlíusson.

Kaffiveitingar voru í boði hússins.

 

Reinhard setti fundinn og bauð viðstadda velkomna á stofnfund. 

Reinhard bar upp fyrsta mál á dagskrá sem er nafn á nýtt félag.  Reinhard gerði tillögu um nafnið “Náttfari – bifhjólasamtök Þingeyinga.

Hreiðar Hreiðarsson hafði undirbúið sig fyrir fundinn og bauð upp á sýningu á merkjum og nöfnum, hugsanlegum í “slide show”.  Fyrirfram hafði verið rætt um nafnið Náttfari og hafði Hreiðar gengið út frá því.  Hann hafði skeytt við nafnið Náttfari, upphafsstöfunum MC, sem stendur fyrir “motorcycle club”, eða “motor club”.

 

Eftir sýningu Hreiðars á hugsanlegum merkjum og útliti þeirra með nafninu Náttfari, var gengið til atkvæða um nafnið sem fundarstjóri hafði borið upp. 

Var það samþykkt samhljóða.  Rætt var um að láta hanna merki.

Reinhard fundarstjóri hafði útbúið drög að lögum félagsins og dreifði eintökum á fundarmenn.  Ákveðið að fara strax í að lesa yfir lögin og athuga hvort eitthvað mætti betur fara, laga orðalag og svoleiðis.

 

Gerðar voru nokkrar athugasemdir bæði við orðalag og greinar í heild sinni.  Fundarstjóri tók að sér að fara yfir lögin og gera nauðsynlegar breytingar.

Gerðar voru fyrst athugasemdir við að inn í lögin vantaði algerlega 2.grein.  Reinhard kvaðst laga það við útprentun yfirfarinna laga eftir fundinn.

Tillögur komu fram um breytt orðalag 3.greinar varðandi tilgang samtakanna.  Var 2.mgr. lagfærð nokkuð.

 

Einni mgr. var bætt við 4.gr. laganna varðandi inngöngu í félagið, en nokkur umræða spannst um hvort takmarka ætti inngöngu í félagið.  Skarphéðinn kvað að menn hefðu ekki allt of góða reynslu af því að opna algerlega fyrir inngöngu í samtökin og benti því til stuðnings á að þegar lögum Snigla var breytt varðandi inngöngu, að hætt var að láta meðlimi mæla með nýjum umsækjendum, þá hefði það næstum gengið að samtökunum dauðum.  Hann benti á að gott væri að hafa einhverjar hömlur, en mikið hefði verið um að menn gengju í samtök sem þessi bara til að fá merki og hættu menn síðan.

Menn ræddu þetta fram og aftur en endanlega var ákveðið m.t.t. til sambærilegra laga t.d. “Postulanna” að takmarka ekki inngöngu frekar en þau samtök.

Bætt var þó eins og áður sagði málsgrein við 4.gr. laganna varðandi inntöku félaga.  Þar kemur fram að stjórn afgreiðir umsóknir um inngöngu í samtökin sem og skulu umsóknir staðfestar á næsta aðalfundi.

 

Smávægilegar orðalagsbreytingar voru gerðar á 8- og 9.gr. laganna.  Breytt var 10.gr. um boðun aðalfundar um að til hans skyldi boða fyrir maílok ár hvert, en ekki apríl eins og verið hafði í lagadrögum.  Var það gert aðallega vegna veðurfarslegra aðstæðna, en verið gæti gott að menn hefðu möguleika að koma á hjólunum á aðalfund.  Styttur var og boðunartími aðalfundar úr 20 dögum í 10 daga.

Lítilsháttar breytingar gerðar á greinum 11- 17, bæði varðandi orðalag og aðrar smávægilegar breytingar og

 

Lögin voru að því loknu samþykkt og kvaðst Reinhard myndu koma þeim til væntanlegrar stjórnar eftir hreinritun. 

 

Albert kom inn á hvort menn vildu ræða hvar merkið yrði staðsett á fatnaði t.d.   Ákveðið var að fresta þeirri umræðu þar til merkið hefði verið hannað og útbúin prufueintök.

 

Fundarstjóri bar um næsta mál sem var kosning stjórnar samtakanna.  Fundarstjóri kynnti sem tillögu að kosið yrði í eftirtalin embætti.  Oddvita, féhirði og skrifara.  Einnig væri kosið um tvo varamenn og tvo skoðunarmenn reikninga. 

Fundarstjóri stakk upp á Aðalsteini Júlíussyni sem oddvita og var það eftir smá stund samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri stakk því næst upp á Hjálmari Ingimarssyni sem féhirði og var það einnig samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri hafði spurnir af því að Baldur Sigtryggsson (Balli í Tungu) hefði áhuga á stjórnarstarfi en hann var á sjó og gat ekki mætt á fundinn.  Reinhard hafði engu að síður umboð frá Baldri á fundinum.  Fundarstjóri stakk upp á Baldri sem skrifara og var það samþykkt samhljóða.

Sem varamenn voru bornir upp, Skarphéðinn Aðalsteinsson og Sigmundur Þorgrímsson.  Var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að veita þeim brautargengi sem varamönnum.

Skoðunarmenn reikninga voru samþykktir einum rómi, Reinhard Reynisson og Jóhann Guðni Reynisson, margreyndir töluglöggir menn, undir lófataki.

 

 

Fundarstjóri gaf því næst orðið frjálst í liðnum “Önnur mál”.

 

Rætt var um að hafa sýningu á mærudögum, hópakstur og sýningu á hjólunum.   Einnig hópakstur á 17.júní ef áhugi væri á.  Ákveðið að stjórn myndi skipuleggja viðburði í sumar, en menn hefðu þó á fyrsta ári samtakanna ekki of mikið umleikis og setja markið hóflega hátt.

 

Ákveðið var að 1500 kr. inntökugjald yrði innheimt af stofnfélögum, til að standa straum af kostnaði við fundi og/eða kaffiveitingar og e.t.v. auglýsingar o.þ.h.

Albert Arnarson kvaðst eiga lénið náttfari.is.  Ákveðið var að Albert myndi verða sérlegur ritstjóri fréttarits, þá vefrits og kvaðst hann myndu sjá um það og koma því á fót.  Rætt var um að fá bankastofnun til að styrkja vefritið með auglýsingu, þá til að kosta ársiðgjald lénsins.  Verður farið í það fljótlega að afla styrkja til vefrits.

 

Rætt var um að stofnfélagar myndu fá númer eins og tíðkast í líkum samtökum.  Ákveðið var að draga um númer þegar innheimt hefur verið inntökugjald og verða þá allir stofnfélagar með í þeim útdrætti og jöfnuður með félögum varðandi númeraúthlutun.

 

Fundurinn gaf Reinhard Reynissyni fundarstjóra og Aðalsteini Júlíussyni fundarritara fundarins umboð, við fundarlok til að ganga frá fundargerð og lögum félagsins.

 

Þannig fram farið,

 

Húsavík 05.05.2006.

 

Aðalsteinn Júlíusson fundarritari stofnfundar Náttfara – bifhjólasamtaka Þingeyinga.

 

 

 

Atburðadagatal
Vikudagarnir
29
30
31
1
2
3

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

   

  

 

 

 

 

 

 

 

Síðuflettingar
frá 01.03.2007
Náttfari bifhjólasamtök Þingeyinga - nattfari@nattfari.is - GSM 865-5060